Lánareglur og lánakjör

  • Eingöngu fyrirtæki í meirihlutaeigu konu/kvenna geta fengið ábyrgðartryggingu/lán. Gerð er krafa um að í verkefninu felist atvinnusköpun.  

    Hægt er að sækja um lánatryggingu vegna eftirtalinna þátta: 

    • Markaðskostnaðar
    • Vöruþróunar 
    • Nýrra leiða í framleiðslu eða framsetningu vöru/þjónustu.

    Almennt
    Unnt verður að sækja um lán fyrir verkefnum innan fyrirtækja sem leiða til atvinnusköpunar og
    verðmætaaukningar. Mat er lagt á viðskiptaáætlun fyrirtækisins og/eða þess afmarkaða
    verkefnis innan fyrirtækis sem ábyrgð á láni er sótt um og er grundvöllur umsóknar.
    Ekki er veitt ábyrgð á láni fyrir óhóflegum launakostnaði við vöruþróun, sölu- og markaðsstarf.
    Að jafnaði er ekki veitt ábyrgð á láni fyrir reglubundnum rekstrarkostnaði.
    Til greina kemur að veita lán fyrir tækjum sem eru nauðsynleg rekstrinum og/eða verkefninu
    en þá með veði í umræddum tækjum. Lánað er fyrir kostnaðarverði tækjanna að því gefnu að
    notkun á þeim leiði til atvinnusköpunar og verðmætaaukningar.
    Boðið verði upp á val á milli óverðtryggða og verðtryggða lána. Lánstími þarf að vera 5 ár fyrir
    verðtryggð lán.

    Lánstími
    Að jafnaði skal miðað skal við að lánstími sé ekki lengri en 5 ár.

    Lánsfjárhæð
    Lán skulu ekki vera lægri en 3 milljónir króna og ekki hærri en 15 milljónir króna.
    Undantekningar frá þessu ákvæði skulu samþykkt bæði af stjórn Svanna og af bankanum.

    Vaxtakjör
    Vaxtakjör eru í samræmi við kjörvaxtaflokk 2 hjá Landsbankanum, eins og þeir eru ákveðnir á
    hverjum tíma.

    Lántökugjöld og önnur gjöld
    Lántökugjald er 1,50% óháð lánstíma. Lántökugjald er innheimt við útborgun láns. Kostnaður
    vegna skjalagerðar er samkv. verðskrá bankans hverju sinni.

    Fyrirkomulag innheimtu
    Innheimta lána fer í gegnum innheimtuferil Landsbankans og skal vera í samræmi við
    innheimtuferil bankans eins og hann er á hverjum tíma.

Opið fyrir umsóknir um lán
Opna umsóknarvef