Um Svanna

  • Svanni lánatryggingasjóður er í eigu dómsmála- og atvinnuvegaráðuneytis ásamt Reykjavíkurborg og hefur hann verið starfræktur frá árinu 2011.  Nýlega hefur starfstímabil sjóðsins verið endurnýjað og er timabilið til fjögurra ára, frá 2025-2029.

    Sjóðurinn veitir lán með lánatryggingu til fyrirtækja í meirihlutaeigu kvenna, sem þýðir að ekki þarf að leggja fram veð fyrir láninu.

    Samningur er við Landsbankann um veitingu lána en bankin tekur helming áhættu á móti sjóðnum.

    Alls hafa borist 182 umsóknir frá byrjun starfsemi sjóðsins árið 2011 og eru afgreidd og samþykkt lán til 34 fyrirtækja með fjölbreyttri starfsemi. 

    Markmið og hlutverk

    Nánari upplýsingar um lánareglur og þau gögn sem skila þarf má finna á heimasíðunni undir Umsóknir.

    Hlutverk sjóðsins er að styðja konur til nýsköpunar og þátttöku í atvinnulífinu með því að veita  ábyrgðir á lánum til verkefna innan fyrirtækja.

    Áherslur sjóðsins eru eftirfarandi:

    • Að styðja við bakið á konum sem eiga og reka smærri fyrirtæki.
    • Að stuðla að því að auka hlut kvenna sem eigendur og stjórnendur fyrirtækja.
    • Að auka aðgengi kvenna að fjármagni til fyrirtækjareksturs.
    • Að fjölga störfum og stuðla að nýnæmi í atvinnulífi.
    • Að veita ráðgjöf til umsækjenda um ábyrgð sjóðsins á láni.
    • Að hvetja jaðarhópa kvenna til þátttöku í atvinnulífinu, svo sem innflytjendur.