Stjórn Svanna og eigendur

  • Stjórn Svanna skipa þau Guðrún Tinna Ólafsdóttir, formaður, skipuð af dómsmálaráðuneytinu, Hákon Skúlason, skipaður af atvinnuvegaráðuneytinu og Ellen Jacqueline Calmon, skipuð af Reykjavíkurborg.

    Samstarf við Landsbankann

    Svanni Lánatryggingasjóður kvenna er í samstarfi við Landsbankann um veitingu lána.  Í samningi við bankann er kveðið á um tilgang samstarfsins sem er að veita konum í atvinnurekstri lán ásamt því að bankinn tekur helming ábyrgðar á móti sjóðnum.  

    Í samkomulaginu er kveðið á um vinnulag varðandi umsóknir og úrvinnslu þeirra, mat bankans, tegundir lána, ábyrgð sjóðs og banka, breytingar á stöðu lántaka og skuldbreytingar. 

    Lánareglur sjóðsins eru einnig samþykktar af stjórn og banka en þær kveða nánar um skilyrði ábyrgðar, meðferð og mat umsókna, afgreiðslu þeirra, framkvæmd ábyrgða, ráðgjöf, lengd ábyrgðar og aðgerðir vegna vanskila. 

    Stjórn og banki funda reglulega um umsóknir og náið samstarf er milli starfsmanns sjóðsins og starfsmanna bankans. Í samningi er kveðið á um árlegan samráðsfunds stjórnar og Landsbanka þar sem farið er yfir stöðu lána og fleira sem viðkemur verkefninu.

Opið fyrir umsóknir um lán
Opna umsóknarvef