Spurt og svarað
Hvað er hægt að taka hátt lán?
Hámarksupphæð er 15.000.000
Til hvaða þátta er lánað?
Hægt er að fá lánað til sérstakra verkefna innan fyrirtækis. Ekki er hægt að fá lánað fyrir venjubundnum rekstarkostnaði/launakostnaði.
Get ég fengið lán vegna rekstarkostnaðar?
Nei, ekki er lánað vegna rekstarkostnaðar né launakostnaðar.
Hverjir eru í stjórn sjóðsins?
Stjórn Svanna skipa þau Guðrún Tinna Ólafsdóttir, formaður, skipuð af dómsmálaráðuneytinu, Hákon Skúlason, skipaður af atvinnuvegaráðuneytinu og Ellen Jacqueline Calmon, skipuð af Reykjavíkurborg.
Hvaða gögnum þarf að skila?
Skila þarf viðskiptaáætlun, fjárhagsáætlun og endurgreiðsluáætlun.
Hvenær er umsóknarfrestur?
Opið er fyrir umsóknir allt árið um kring en úthlutað að vori og hausti.
Hvað er lánatrygging?
Þegar veitt eru lán með lánatryggingu þá þarf ekki að leggja fram veð fyrir láninu, heldur tekur sjóðurinn og bankinn áhættuna.

