Umsóknarferli
Umsókn er skilað í gegnum umsóknarkerfi Svanna en opið er fyrir umsóknir allt árið um kring.
Lokað er fyrir umsóknir tvisvar á ári, að vori og að hausti. Þá eru umsóknir teknar niður og þær metnar af stjórn sjóðsins.
Stjórnin sendir þær umsóknir áfram til bankans sem hún telur að eigi möguleika á láni. Bankinn fer yfir viðskipta- og fjárhagáætlanir og þegar því er lokið þá hittist stjórn og banki og ákveða hvaða umsóknir komast í gegn. Þá eru þeir umsækjendur kallaðir í viðtal með stjórn og banka þar sem hægt er að fá ítarlegri upplýsingar um umsókn og gögn ef þurfa þykir.
Í framhaldinu er tekin ákvörðun um lánveitingu.
Gögn sem skila þarf með umsókn
- Viðskiptaáætlun
- Fjárhagsáætlun (til 3-5 ára)
- Endurgreiðsluáætlun þar sem kemur fram hvernig á að greiða lánið til baka.
- Staðfesting á eignarhaldi fyrirtækis (Athuga – hægt að sjá í fyrirtækjaskrá)

