Geosilica – frá hugmynd til veruleika

This is the lede paragraph for the blog post. It should be populated with dynamic data from a WYSIWYG custom field assigned to your posts.

Fréttir, Svanni-lánatryggingasjóður kvenna

GeoSilica er íslenskt fyrirtæki sem framleiðir 100% náttúruleg fæðubótarefni byggð á kísilsteinefnum sem unnin eru úr íslensku jarðhitavatni. Fyrirtækið nýtir sér einkaleyfisvarða tækni til að vinna og hreinsa steinefni úr jarðhita landsins og býður upp á vegan-vottaðar vörur án aukaefna. Kísill er mikilvægt steinefni sem tekur þátt í kollagenmyndun og styður þannig við heilbrigði hárs, húðar, nagla, beina og liðamóta. Vörulína GeoSilica inniheldur meðal annars PURE, RENEW, REPAIR, RECOVER og REFOCUS, sem eru þróaðar til að styðja við mismunandi þætti heilsu og vellíðanar og eru vörurnar ætlaðar til daglegrar notkunar og byggja á auðupptakanlegum steinefnum úr íslenskri náttúru.

Geosilica er eitt af þeim fyrirtækjum sem hafa fengið fyrirgreiðslu hjá Svanna, bæði á meðan að fyrirtækið var í þróun og svo aftur núna þegar fyrirtækið er að flytja starfsemi sína á Þeistareyki.

Við tókum hús á stofnanda fyrirtæksins, Fidu Abu Libdeh til að forvitnast um fyrirtækið og verkefnin framundan.

„Ég heiti Fida Abu Libdeh og er stofnandi og forstjóri GeoSilica Iceland. Ég er menntuð í orku og umhverfistæknifræði frá Háskóla Íslands og með MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík.

Ég kom til Íslands frá Palestínu þegar ég var 16 ára og hef því sjálf upplifað hvað það þýðir að byrja upp á nýtt, læra nýtt tungumál og finna sína leið í nýju samfélagi.

Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á sjálfbærni, nýsköpun og því hvernig við getum nýtt auðlindir okkar betur. Það hefur í raun fylgt mér í gegnum allan minn starfsferil.

Samhliða GeoSilica kenni ég frumkvöðlafræði á háskólastigi og hef lagt mikla áherslu á að styðja og hvetja konur til þátttöku í nýsköpun, tækni og atvinnurekstri. Mér finnst mikilvægt að miðla áfram þeirri reynslu sem ég hef sjálf öðlast, bæði því sem hefur gengið vel og því sem hefur verið erfitt.

Segðu okkur frá því hvernig hugmyndin og þá fyrirtækið varð til?

GeoSilica varð til árið 2012 út frá mjög einfaldri spurningu: Getum við nýtt jarðhitavatnið okkar betur?

Í jarðhitavinnslu getur kísill valdið útfellingum og skapað ýmsar tæknilegar áskoranir. Ég fór að horfa á þetta frá öðru sjónarhorni og í stað þess að sjá eingöngu vandamál sá ég mögulega auðlind.

Þar hófst vegferð GeoSilica.

Við fórum af stað í rannsóknir og þróun og þróuðum tækni til að vinna kísil úr jarðhitavatni. Fyrstu vörurnar okkar voru fæðubótarefni og síðan hefur fyrirtækið þróast skref fyrir skref.

Þetta gerðist auðvitað ekki á einni nóttu. Leiðin frá hugmynd og rannsóknarstofu yfir í framleiðslu, vöru og markað hefur verið löng og stundum mjög krefjandi.

Í dag er GeoSilica með vörur á markaði, tækni og sérþekkingu sem hefur byggst upp á mörgum árum. Við höldum jafnframt áfram rannsóknum og þróun, því fyrir mér hefur GeoSilica aldrei snúist eingöngu um eina vöru. Þetta snýst um þekkinguna sem við erum að byggja upp og hvað við getum gert meira með hana.

Hvað er framundan hjá fyrirtækinu?

Núna erum við að fara inn í einn stærsta kaflann í sögu GeoSilica en við erum að byggja upp næsta stig fyrirtækisins á Þeistareykjum en fyrirtækið hefur gert 15 ára samining við Landsvirkjun um aðgengi að hráefni.

Markmiðið er að auka framleiðslugetuna verulega og skapa sterkari grunn fyrir áframhaldandi vöxt, bæði á Íslandi og erlendis. Mikilvægt er einnig að uppbyggingin skapi verðmæti á svæðinu og tækifæri fyrir fólk þar.

Fyrir mig er þetta stór skref, sérstaklega þegar ég hugsa til þess hvar við byrjuðum.

Það sem mér finnst kannski mest spennandi er hvað kemur þar á eftir því þekkingin og tæknin sem við höfum byggt upp geta skapað miklu fleiri tækifæri. Við erum meðal annars að þróa kísil sem líförvandi efni í landbúnaði og skoða fleiri möguleika á að vinna verðmæt efni úr jarðhitavatni með hreinum og sjálfbærum hætti.

Ég sé því GeoSilica ekki eingöngu sem fyrirtæki sem framleiðir þær vörur sem við erum með í dag, ég sé miklu stærri möguleika til framtíðar.

Hvernig hefur Svanni komið að þessari vegferð?

Svanni á sérstakan stað í sögu GeoSilica vegna þess að hann hefur komið að fyrirtækinu á mikilvægum tímamótum.

Svanni kom fyrst inn árið 2018 þegar við vorum að taka okkar fyrstu stóru skref í stækkun fyrirtækisins. Nú, átta árum síðar, erum við aftur á mjög mikilvægum tímamótum og Svanni er aftur með okkur þegar við tökum næsta stóra skref.

Þetta skiptir miklu máli því þegar maður er að byggja fyrirtæki frá grunni er fjármögnun ekki bara tala í Excel skjali. Hún getur ráðið því hvort þú getir ráðið næsta starfsmann, fjárfest í búnaði, aukið framleiðslu eða tekið tækifæri þegar það kemur.

En þetta snýst heldur ekki eingöngu um peningana, það skiptir máli þegar einhver er tilbúinn að segja, við höfum trú á þessu fyrirtæki og að þið getið tekið næsta skref.

Ég er því mjög þakklát fyrir það traust sem Svanni hefur sýnt okkur. Fyrst þegar GeoSilica var mun yngra fyrirtæki og nú aftur þegar við stöndum frammi fyrir næsta stóra vaxtarskeiði.

Fyrir mig sýnir þetta líka hvers vegna sjóðir eins og Svanni skipta máli. Við viljum sjá fleiri konur stofna fyrirtæki, en það er ekki nóg. Við þurfum líka að skapa aðstæður þar sem konur geta byggt fyrirtækin sín upp, stækkað þau og látið stórar hugmyndir verða að raunverulegum rekstri.

 Hvað hefur verið skemmtilegast í ferlinu ?

Það skemmtilegasta er líklega að sjá eitthvað sem einu sinni var bara hugmynd verða að veruleika. Ég man eftir fyrstu tilraununum, öllum spurningunum og öllum skiptunum sem við vissum ekki alveg hvort þetta myndi ganga.

Síðan sér maður vöruna á markaði, fær viðbrögð frá viðskiptavinum og sér fyrirtækið vaxa og nú erum við komin á þann stað að vera að undirbúa næsta stóra kafla.

Mér finnst líka ótrúlega gefandi að hugmyndin sem GeoSilica byggir á sé í grunninn svo einföld, að horfa öðruvísi á það sem við köllum vandamál.

Stundum er verðmætasta tækifærið einmitt þar.

Hverjar hafa stærstu áskoranirnar verið?

Þær hafa verið margar.

Að byggja nýsköpunarfyrirtæki frá grunni tekur miklu lengri tíma en maður heldur þegar maður byrjar. Það þarf fjármagn, þolinmæði, úthald og stundum ansi þykkan skráp.

Þegar verið er að þróa nýja tækni fær maður ekki alltaf niðurstöðuna sem maður vonaðist eftir. Áætlanir breytast, fjármögnun tekur tíma, markaðurinn breytist og stundum lokast dyr sem maður var alveg viss um að myndu opnast.

Ég hef lært að það að gefast ekki upp þýðir ekki að maður eigi alltaf að halda áfram á nákvæmlega sömu leið. Stundum þarf maður að breyta leiðinni en halda áfram að stefna að sama markmiði.

Ég hef líka lært mikilvægi þess að biðja um hjálp og hafa gott fólk í kringum sig.

Enginn byggir fyrirtæki einn. GeoSilica væri ekki þar sem það er í dag án starfsfólksins okkar, samstarfsaðila, fjárfesta og þeirra sem hafa haft trú á okkur í gegnum árin.

Það er eitthvað sem ég er mjög þakklát fyrir.

Hvaða heilræði myndir þú gefa öðrum frumkvöðlakonum?

Ekki bíða eftir að allt sé fullkomið áður en þú byrjar, það verður aldrei fullkominn tími.

Prófaðu hugmyndina. Talaðu við viðskiptavini. Hlustaðu. Vertu tilbúin að breyta henni og ekki verða svo ástfangin af fyrstu útgáfunni af hugmyndinni að þú hættir að sjá hvað markaðurinn er að segja þér.

Og ekki vera hrædd við mistök. Ég hef gert fullt af mistökum á þessari vegferð. Það mikilvæga er að læra af þeim, standa aftur upp og halda áfram.

Og ef ég ætti að segja eitthvað sérstaklega við konur sem eru með hugmynd eða vilja fara út í rekstur, þá væri það þetta:

Ekki bíða eftir því að einhver annar segi þér að þú sért tilbúin.

Taktu fyrsta skrefið.

Þú þarft ekki að kunna allt áður en þú byrjar. Ég kunni það svo sannarlega ekki. Margt af því mikilvægasta lærir maður á leiðinni.

Og þegar einhver réttir þér hönd á þeirri vegferð, hvort sem það er leiðbeinandi, samstarfsaðili, fjárfestir eða sjóður eins og Svanni, þá skiptir það máli.

Ég er mjög þakklát öllum þeim sem hafa gengið þessa leið með okkur. GeoSilica er afrakstur margra ára vinnu, þrautseigju og fólks sem hefur haft trú á því að hugmynd geti orðið að einhverju stærra.

Vöruúrval Geosilica

Við Þeistareyki

Frá undirritun samnings við Landsvirkjun

Nýja starfssvæðið við Þeistareyki

Aðrar færslur

October 6, 2026

Geosilica – frá hugmynd til veruleika

September 23, 2026

Gró – vaxandi samfélag á Hofsósi

September 8, 2026

Kynningarfundur á Akureyri

September 2, 2026

Kynningarfundur um lán hjá Svanna