Gró – vaxandi samfélag á Hofsósi

This is the lede paragraph for the blog post. It should be populated with dynamic data from a WYSIWYG custom field assigned to your posts.

Fréttir, Svanni-lánatryggingasjóður kvenna

Ein af lánþegum Svanna-lánatryggingasjóðs kvenna er Amber Monroe sem rekur sprotafyrirtækin Ísponica og Gró á Hofsósi. Amber er frá Savannah í Georgíu fylki í Bandaríkjunum og er menntuð í líffræði frá Georgia Southern University þaðan sem hún lauk Msc námi.
Hún heillaðist af vatnsræktun sem barn þegar hún heimsótti Disney World í Flórida. „Mér fannst þetta vera það mest spennandi sem ég hafði nokkurntíma séð og vissi þá að mig langaði að fara í þessa átt í nám og starfi. Þegar ég kom til Íslands fann ég strax að hér væri fullkominn staður til að vinna að minni ástríðu“.

Heillaðist af Íslandi

Amber kom fyrst til Íslands sem ferðamaður árið 2017 og heillaðist af landi og þjóð og ákvað að snúa aftur og hefja nám í fiskeldisfræði við Hólaskóla í Skagafirði. Hún lauk B.Sc. gráðu í vatna-  og fiskalíffræði frá Háskólanum að Hólum (nú Háskóla íslands) árið 2021.
Eftir útskrift stofnaði hún fyrirtækið Ísponica sem framleiðir grænmeti með aðferð vatnsræktunar (Aquaponics, fiska-og plönturækt í lokuðu vistkerfi) sem er ræktunaraðferð þar sem fiskeldi og vatnsræktun plantna (hydroponics) eru sameinuð í eitt kerfi. Fyrirtækið festi nýverið kaup á gamla frystihúsinu á Hofsósi og er starfsemin hýst þar

„Skagafjörður er nú orðið heimili mitt og það er mikilvægt fyrir mig að byggja upp eitthvað sem hefur jákvæð áhrif á samfélagið og sem mun lifa áfram. Að taka við frystihúsinu gefur mér möguleikana á að hugsa stærra og til framtíðar“

Lánið frá Svanna nýtt til að setja upp aðstöðu fyrir kaffihús í frystihúsinu og er markmiðið að þar verði einskonar samfélag fyrir heimamenn en einnig þjónusta fyrir ferðamenn.

Samfélag í gömlu frystihúsi

„Mig langar til að skapa vettvang þar sem fólk kemur saman, hvort sem það er til að læra eitthvað nýtt, hittast eða bara fá sér kaffi. Í smærri samfélögum er mikilvægt að fólk hafi samastað.   Kaffihúsið hefur hlotið nafnið Gró og hafa þær Dorothea Olesen Halldorsdóttir og Herdís Arna Hallgrímsdóttir frá Listaháskólanum, verið mikilvægir samstarfsaðilar til að taka verkefnið áfram. Þær hafa komið með frábærar og öðruvísi hugmyndir um hvernig það gæti nýst fyrir samfélagið, en þær hafa einnig leitað til samfélagsins til að heyra skoðanir heimamanna og fá viðbrögð. 

Amber sér gríðarlega möguleika í starfseminni í frystihúsinu en fyrirhugað er að rækta þar snigla og sveppi auk grænmetis og fiska. Í húsinu geta gestir því skoðað mismunandi framleiðslu, fengið fræðslu og keypt afurðir og kaffi.   Amber er í samstarfi við ýmsa skóla, bæði hérlendis og erlendis auk samvinnu við aðila í héraðinu, matvælafyrirtæki og ferðaþjónustu.

Mikilvægt að trúa á hugmyndina

Spurð um áskoranir sem hafa orðið á vegi hennar segir hún að þær séu að mörgu leyti  hefðbundnar, erfitt getur reynst að fjármagna fyrirtækið, skilja markaðinn og hvernig á að ná til viðskiptavina. Í ferlinu verða mistök og mikilvægt er að læra af þeim.

„ Að stofna fyrirtæki á landsbyggðinni er áskorun út af fyrir sig,  einkum hvað varðar innviði, skipulag flutninga og aðgang að nauðsynlegum auðlindum. Þess má þó geta að fólk hér í Skagafirði er mjög styðjandi og viljugt að aðstoða.
Persónulegar áskoranir hafa einnig orðið á vegi mínum, mitt ferðalag sem innflytjandi hefur ekki alltaf verið auðvelt. Þrátt fyrir að ég hef búið hér í 8 ár er ég ekki með varanlegt dvalarleyfi. Það hefur ekki hamlað uppbyggingu fyrirtækisins en eru ákveðin persónuleg vonbrigði. Ég hef samt verið svo heppin að hafa fólk í kringum mig sem hefur stutt mig með ráð og dáð og trúir á það sem ég er að byggja upp.“

Þegar Amber er spurð að því hvaða ráð hún getur gefið frumkvöðlakonum í hennar stöðu segir hún að annarsvegar sé það mikilvægt að skilja að það munu ekki allir átta sig á hugmyndinni í byrjun og hvað þú ert að gera. Að trúa á hugmyndina er því mjög mikilvægt og að hafa seiglu til að halda áfram með skýra sýn til framtíðar.

„Hinsvegar er það mitt ráð að umkringja þig fólki sem trúir á þig og hugmyndina þína, og þá sérstaklega þegar þú efast. Að byggja upp fyrirtæki byggir upp ákveðin karaktereinkenni og það koma tímar þar sem þú efast um allt sem þú ert að gera. Að hafa rétt fólk í kringum þig skiptir öllu máli“.

Hvaða máli skipti lánið frá Svanna?

Lánið frá Svanna skipti okkur miklu máli og  hefur gert okkur kleift að halda áfram með Gró verkefnið. Fyrir lítið fyrirtæki er þessi stuðningur ómetanlegur og gefur okkur tækifæri til að þróa og hanna svæðið, fjárfesta í búnaði og gera Gró að stað sem tekur vel á móti fólki.

Það verður spennandi að fylgjast með uppbyggingunni í gamla frystihúsinu á Hofsósi sem von bráðar verður lifandi staður þar sem heimamenn og aðrir gestir geta átt samastað.

Aðrar færslur

September 23, 2026

Gró – vaxandi samfélag á Hofsósi

September 8, 2026

Kynningarfundur á Akureyri

September 2, 2026

Kynningarfundur um lán hjá Svanna

August 20, 2026

Viltu efla fyrirtækið þitt?