Umsóknarfrestur um lán

This is the lede paragraph for the blog post. It should be populated with dynamic data from a WYSIWYG custom field assigned to your posts.

Fréttir, Svanni-lánatryggingasjóður kvenna

Búið er að opna fyrir umsóknir hjá Svanna-lánatryggingasjóði og er umsóknarfrestur til og með 13. apríl næstkomandi.

Eingöngu fyrirtæki í eigu konu/kvenna geta fengið ábyrgðartryggingu/lán og gerð er krafa um að í verkefninu felist atvinnusköpun.

Hægt er að sækja um lánatryggingu vegna eftirtalinna þátta:

· Markaðskostnaðar

· Vöruþróunar

· Nýrra leiða í framleiðslu eða framsetningu vöru/þjónustu.

Mat er lagt á viðskiptaáætlun fyrirtækisins og/eða þess afmarkaða verkefnis innan fyrirtækis sem ábyrgð á láni er sótt um og er grundvöllur umsóknar. Ekki er veitt ábyrgð á láni fyrir óhóflegum launakostnaði né launakostnaði eigenda sbr. við vöruþróun, sölu- og markaðsstarf.

Að jafnaði er ekki veitt ábyrgð á láni fyrir reglubundnum rekstrarkostnaði.

Til greina kemur að veita lán fyrir tækjum sem eru nauðsynleg rekstrinum og/eða verkefninu en þá með veði í umræddum tækjum. Lánað er fyrir kostnaðarverði tækjanna að því gefnu að notkun á þeim leiði til atvinnusköpunar og verðmætaaukningar.

Ábyrgð skal ekki vera undir 1.500.000 króna og að jafnaði skal ábyrgð ekki fara yfir 7,5 milljónir króna (15 m.kr.lán).

Sótt er um á heimasíðunni, smellt á „Sækja um“ og þá opnast umsóknarkerfið.

Aðrar færslur

June 18, 2026

Umsóknarfrestur er til 1.október

March 24, 2026

Umsóknarfrestur um lán

February 19, 2026

Kynningarfundur um lánamöguleika

December 18, 2025

Svanni-lánatryggingasjóður heldur áfram starfsemi
Opið fyrir umsóknir um lán - umsóknarfrestur er til og með 1.október 2026
Opna umsóknarvef