Umsóknarfrestur um lán með lánatryggingu hjá Svanna er til 15.október 2026.
Nú er opið fyrir umsóknir í Svanna-lánatryggingasjóð kvenna.
Sjóðurinn er í eigu dómsmálaráðuneytis, atvinnu- og nýsköpunarráðuneytis og Reykjavíkurborgar og veitir lán með lánatryggingum til fyrirtækja í eigu kvenna. Sjóðurinn er í samstarfi við Landsbankann sem veitir lánin.
Samkvæmt samþykktum sjóðsins eru hlutverk hans m.a. að styðja við bakið á konum sem eiga og reka smærri fyrirtæki, að stuðla að því að auka hlut kvenna sem eigendur og stjórnendur fyrirtækja, að auka aðgengi kvenna að fjármagni til fyrirtækjareksturs, að fjölga störfum og stuðla að nýnæmi í atvinnulífi, að veita ráðgjöf til umsækjenda um ábyrgð sjóðsins á láni og að hvetja jaðarhópa kvenna til þátttöku í atvinnulífinu.
Eingöngu fyrirtæki í eigu konu/kvenna geta fengið lán og er hámarkslán 15.m.kr. Gerð er krafa um að í verkefninu felist atvinnusköpun og hægt er að sækja um lánatryggingu vegna eftirtalinna þátta:
- Markaðskostnaðar
- Vöruþróunar
- Nýrra leiða í framleiðslu eða framsetningu vöru/þjónustu.
Með umsókn þarf að fylgja viðskiptaáætlun ásamt ítarlegum fjárhagsupplýsingum og endurgreiðsluáætlun.
Skoða má nánari upplýsingar um lánareglur og lánskjör hér á heimasíðu sjóðsins en hér má einnig finna rafrænt umsóknareyðublað.
Hér má hlusta á hlaðvarpsviðtal við Guðrúnu Tinnu Ólafsdóttur, formann sjóðsins:
Hér má hlusta á hlaðvarpsviðtal við Ásdísi Guðmundsdóttur, starfsmann sjóðsins
Atvinnumál kvenna
Skoðaðu möguleikana með Svanna!
Smelltu hér til að sækja um


